Það er óþarfi að fegra kvíða sem rænir lífum og lifsgæðum.

Það er ekki eins og maður hafi verið  stoltur að geta ekki tekið ábyrgð. En það voru ástæður og ekki þekking til sem er til í dag. Mér finnst samt eins og var með samkynhneigða að meiri virðingu og viðurkenningu vanti og fólk átti sig á  að kvíðinn fer ekki í manngreiningarálit það eru frekar fullorðnir sem fara í manngreiningarálit. Ég er hinsvegar stoltur að tala um til þess að fólk átti sig á alvarleikanum sem kvíðinn getur valdið og mikilvægi þess að ungmenni fái hjálp. https://www.dv.is/fokus/2019/01/22/eymundur-thordi-ekki-ad-ala-upp-eigin-son-eg-var-hraeddur-vid-allt-hraeddur-vid-dyr-og-hraeddur-bara-vid-mannfolkid/


Lífið tekur og lífið gefur.

Já það er óhætt að segja lífið tekur og lífið gefur. Að þurfa ekki að skammast sín fyrir lífið og að miðla af reynslu frá vonleysi til vonar frá barnsaldri er gott.  Það er hægt að gera lítið úr kvíða ungmenna sem þrá að lifa og fá að vera þátttakendur í lífinu í stað þess að kvíða hverjum degi. Stundum held ég að fólk átti sig ekki á hvað kvíði getur stjórnað verið mikið myrkur. Hvernig kvíðaröskun er oft dreginn upp í fjölmiðlum lýsir oft vanþekkingu á alvarlegri kvíðaröskun. Það er kominn tími á að tala á mannamáli um alvarlega kvíðaröskun og þá hlýtur að vera gott að leita til fólks sem hefur komist úr myrkrinu í birtuna. 


mbl.is „Þetta var ekki mér að kenna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónuleg reynsla og jafningjastuðningur með fagfólki

Það að hafa hlutverk og finna að þú skiptir máli gefur fólki tilgang með lífinu. Þegar maður finnur sína rödd og vinnur með sína styrkleika kemur von og maður öðlast nýtt viðhorf og sýn á lífsins verkefni.


mbl.is Að hafa hlutverk skiptir máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geðrækt og úrræði

Það er gott að það sé fjallað um geðheilbrigðismál í dag og afleiðingar og vonina. Mér finnst skipta máli að fjölmiðlar fari ekki í manngreingarálit og að raddir fólksins í landinu fái að heyrast meira. Ég er með skilaboð til rúv útvarpsstjóra,stjórnenda rúv og stjórnar rúv og menntamálaráðherra að raddir okkar með persónulega reynslu og fagfólk fái að heyrast og hvaða úrræði geta staðið fólki til boða.Við sem höfum gengið þennan grýta veg og komist lífs af erum tilbúin að hjálpa. Hjálpa svo aðrir viti af úrræðum og stuðningi og með hjálp vonarinnar og fjölmiðla getum við gert betur fortíðin á það skilið fyrir framtíðina. Við höfum misst marga og myrkrið er mikið þar sem afleiðingar eru miklar. Sýnum það góða sem gert er við þekkjum öll einhvern sem lifir í þögnini hjálpum þeirri manneskju með að leyfa mismunandi röddum að heyrast fyrir vonina og lífið.

Bkv Eymundur ráðgjafi og formaður stjórnar Grófarinnar á Akureyri sem lifði í þögnini og kveið því að vakna hvern morgun í myrkri þar sem vonin var engin.


mbl.is Líf er því miður ekki sama og líf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Eymundur Lúter Eymundsson

Höfundur

Eymundur Lúter Eymundsson
Eymundur Lúter Eymundsson

Útskrifaðist úr Starfsendurhæfingu Norðurlands vorið 2009 og Ráðgjafaskóla Íslands 11.desember 2009. Var á geðdeild FSA í mars 2008, Þrisvar á geðsviði Reykjalundar frá 2008 til 2012. Átta sinnum á Heilsustofnun í Hveragerði frá 2006. Var í geðfræðsluteymi Hugarafls og er einn af stofnendum Grófarinnar á Akureyri 10.október 2013. En Grófin er geðverndarmiðstöð sem hefur haft mikil og jákvæð áhrif á samfélagið frá stofnun og hjálpað ófáum að ná tökum á lífinu. Byrjaði með geðfræðsluteymi 2015 og farið í fimm ár í grunn- og framhaldsskóla. Teymið miðlar af sinni  reynslu og bjargráðum og óhætt að segja þetta hefur hjálpað mikið og höfum fengið mikið lof fyrir. Við gerum það sem við hefðum viljað fá í æsku til að sjá hvað við værum að glíma við og það er ekkert að skammast sín fyrir að fá hjálp ef vanlíðan er farinn að stjórna lífinu. Vera opinn fyrir hjálpini og fá bjargráð og hafa yfir tvær stílabækur með límdum miðum frá ungmennum þar sem mikið þakklæti skín í gegn og þeim finnst við vera kjarkmikil. Geðfræðsluteymið hefur látið 100 ungmenni svara spurningum um gæði fræðslu og er óhætt að segja að fræðslan gaf mörgum von og fengum mikið hrós fyrir. Ég hef skrifað greinar og komið í viðtöl út af málefnum fólks með geðraskanir.Úskrifaðist sem félagsliði 2016. Með slitgigt og er öryrki en fyrst og fremst manneskja með mína kosti og galla eins og hver annar. Ég bý yfir þeim kosti að hafa lifað af myrkrið og fengið hjálp sem ég nýti til þess að láta gott mér leiða. Ég hef farið í þrjár mjaðmaliðaskiptinga sömu megin, með slit í hægri mjöðm og skrið í mjóbaki en á samt betra líf eftir að ég fékk hjálp út af mínum geðröskunum. Hef nýtt mér hjálpina frá 2005 eftir að ég sá hvað ég var búinn að glíma við síðan ég var krakki. Það er von en fyrst þarf maður að sjá hvað maður er að glíma við þar sem það var ekki talað um þessa hluti áður fyrr. En er mikill baráttumaður í dag fyrir vitrænum og réttmætum umræðum um fólk sem glímir við þessi veikindi. Það á ekki að vera skömm að vera maður sjálfur  en stundum er gott að vita hvað maður glímir við til að geta tekist á við með opnum huga.  Vill geta gefið það sem ég hef fengið eftir þá vinnu sem ég hef lagt á mig að það er von í myrkrinu sem getur kveikt ljós.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband